top of page
Search

10 góðar næringarreglur

1. BORÐUM alvöru mat og DREKKUM vatn! Ekki drekka hitaeiningar í formi gosdrykkja eða ávaxtasafa. Mikið af hitaeiningum og sykri/ávaxtasykri sem hægt er að innbyrgða þannig á stuttum tíma. Við fæddumst með tennur til mauka næringarríka fæða en ekki bara drekka fæðuna. Alvöru matur = matur úr náttúrunni en ekki verksmiðjunni. Þeir sem þurfa að bæta á sig þyngd eða eru í mikilli hreyfingu mega drekka næringu.


2. Njótum matarins og borðum hægt Meltingin verður mun betri og við nýtum betur matinn ef við borðum hægt og njótum matarins. Það tekur heilann um 15 mín að fá skilaboð frá maganum að hann sé fullur, því er mikilvægt að gleypa ekki of mikið í sig á nokkrum mínútum.


3. Borðum reglulega yfir daginn A.m.k. 3 máltíðir á dag. Þetta heldur blóðsykri jöfnum, eykur orku og minnkar ofát.


4. Borðum í meðvitund. Ekki borða fyrir framan sjónvarp, tölvu, í bílnum eða annars staðar þar sem þú ert að gera allt annað en að einbeita þér að því að borða. Meðvitundarlaust át veldur því að maður borðar mjög mikið og oft mjög hitaeingaríkan mat.


5. Borðum næringarríkan morgunverð – ALLA daga! Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem borða morgunmat, borða síður óhollustu er líður á daginn og eru frekar í kjörþyngd.


6. Tökum lýsi eða D-vítamín (sérstaklega yfir vetrarmánuðina) Við búum það norðarlega á Jarðarkringlunni að við fáum lítið af sól a.m.k. 9 mánuði á ári. En sólargeilsar geta gefið okkur D-vítamín. D-vítamín er líka mjög óalgengt í almennum matvörum, það er helst ef maður er mjög duglegur að borða mikið að feitum fiski að maður fái nóg D-vítamín.


7. Minnkum viðbættan sykur í mataræðinu eins og við getum Auðveldasta ráðið til að minnka viðbættan sykur í mataræði sínu er að draga sem mest úr gosneyslu. Bragðbættar mjólkurvörur innihalda líka oft mikið af sykri. Kex, kökur og sætindi eru að stórum hluta sykur.

8. Ekki versla í matinn svöng/svangur, stressuð/aður eða í vondu skapi Freistingar í óhollan mat verða meiri ef maður fer í búðina illa fyrir kallaður/kölluð


9. Nærðu sálina – munum að brosa J Mataræði okkar stjórnast mikið af stjórnstöðinni/hausnum. Ef að við erum hamingjusöm, með sjálfstraustið í lagi og okkur líður vel eru minni líkur á því að við borðum óhollt.


10. Fjárfestu í þér og heilsu þinni en ekki megrunariðnaðnum! Kauptu frekar dýra og endingargóða gönguskó en nýjasta „undra“ megrunarduftið eða pillurnar.

24 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page